Endurnýjun Kúbota 2016
Málsnúmer 201604079
Vakta málsnúmerFramkvæmdanefnd - 3. fundur - 13.04.2016
Taka þarf afstöðu til kaupa á nýrri vél í stað gömlu Kubota vélarinnar.
Framkvæmdanefnd felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að kaupa Avant 760i sláttu- og snjómokstursvél, eins og gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun að viðbættum tekjum af endursölu eldri tækja.