Ný slökkvistöð á Húsavík - framvinda mála
Málsnúmer 201701017
Vakta málsnúmerFramkvæmdanefnd - 15. fundur - 05.04.2017
Fyrir framkvæmdanefnd liggur að taka ákvörðun um nauðsynlega stærð byggingar út frá kostnaði ásamt rýmisþörf slökkviliðs og annarar starfsemi sem þar á að fara fram.
Framkvæmdanefnd samþykkir að ljúka fullnaðarhönnun og gerð útboðsgagna fyrir nýja slökkvistöð til samræmis við fyrirliggjandi gögn frá Faglausn.