PCC óskar eftir því að fá að bæta við einni lóð, Dvergabakka 6, undir vinnubúðir.
Málsnúmer 201704106
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 212. fundur - 27.04.2017
PCC hefur óskað eftir því að fá að bæta við einni lóð, Dvergabakka 6, undir vinnubúðir fyrir 120 manns frá 15. maí og fram í septemer á þessu ári.
Byggðarráð fellst á að PCC Bakki Silicon fái afnot af þessari lóð undir vinnubúðir til næstu sex mánaða og felur sveitarstjóra að ganga frá viðauka við fyrirliggjandi lóðarsamning.