Sauðfjárveikivarnir í Norðurþingi
Málsnúmer 201707042
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 219. fundur - 06.07.2017
Olga Gísladóttir óskar eftir því að byggðarráð fjalli um sauðfjárveikivarnir í sveitarfélaginu.
Undanfarið hefur ítrekað borið á því að sauðfjárveikivarnahlið við Jökulsá hefur verið skilið eftir opið. Byggðarráð felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að tryggja réttar merkingar við hliðið.