PCC Bakki óskar eftir takmörkuðu byggingarleyfi fyrir gæsluhliði.
Málsnúmer 201708096
Vakta málsnúmerSkipulags- og umhverfisnefnd - 20. fundur - 12.09.2017
Óskað er eftir leyfi til að reisa 14,8 m² aðstöðuhús við gæsluhlið á vesturjaðri lóðar. Byggingarfulltrúi kynnti athugasemdir sem fram hafa komið vegna byggingarinnar.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur að byggingin sé í samræmi við deiliskipulag og heimilar byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.