Vatnajökulsþjóðgarður óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna borholu í Ásbyrgi.
Málsnúmer 201710118
Vakta málsnúmerSkipulags- og umhverfisnefnd - 21. fundur - 17.10.2017
Óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna borunar kaldavatnsholu í Ásbyrgi. Holunni er ætlað að tryggja framboð neysluvatns á svæðinu. Staðsetning holu var unnin í samráði við ÍSOR og fyrir liggur afstöðumynd.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti borholuna.