Helga Sveinbjörnsdóttir sækir um byggingarlóð að Hrísateig 12
Málsnúmer 201801019
Vakta málsnúmerSkipulags- og umhverfisnefnd - 24. fundur - 09.01.2018
Helga Sveinbjörnsdóttir óskar eftir að fá lóðinni að Hrísateigi 12 úthlutaðri sem byggingarlóð.
Skipulags- og umhverfisnefnd óskar umsagnar Framkvæmdanefndar um úthlutunina áður en afstaða er tekin þar sem lóðarúthlutun krefst umtalsverðrar gatnagerðar. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að auglýsa lóðir við Hrísateig lausar til umsóknar ef framkvæmdanefnd fellst á gatnagerð.