Styrkur - Bifröst-göngubrú að Heimskautsgerði
Málsnúmer 201804221
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 250. fundur - 27.04.2018
Fyrir byggðarráði liggur undirritaður samningur við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða vegna styrks að fjárhæð 22,5 milljónir til verkefnisins Bifröst-göngubrú að Heimskautsgerði.
Byggðarráð fagnar þessari styrkveitingu sem nýtist til áframhaldandi uppbyggingar á Heimsskautsgerði.