Húsavíkurvöllur - frjálsíþróttaaðstaða
Málsnúmer 201805093
Vakta málsnúmerÆskulýðs- og menningarnefnd - 22. fundur - 10.05.2018
Íþróttafélagið Völsungur óskar eftir leyfi frá æskulýðs- og menningarnefnd til að leggja gras yfir kastgeira á Húsavíkurvelli. Tilgangur verksins er að fá aukið svæði til knattspyrnuiðkunar.
Æskulýðs- og menningarnefnd veitir Völsungi leyfi til að leggja gras yfir kastgeira á Húsavíkurvelli enda er um afturkræfa aðgerð að ræða. Nefndin leggur áherslu á að kasthringur verði ekki fjarlægður.