Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar eftir umsögn um rekstrarleyfi fyrir Áin gistihús
Málsnúmer 201805114
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 1. fundur - 26.06.2018
Óskað er umsagnar um leyfi til sölu gistingar í flokki III í gistiskála á lóð úr landi Krossdals.
Skipulags- og framkvæmdaráð harmar það að hvorki þakform né litur á umræddu húsi er til samræmis við samþykkt byggingarleyfi eða ákvæði deiliskipulags þrátt fyrir að nokkur ár séu síðan húsið var reist. Ráðið leggst því gegn veitingu rekstrarleyfis til sölu gistingar í húsinu.