Dagur Ingi óskar eftir að fá að stækka bílastæði við Túngötu 7
Málsnúmer 201806094
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 1. fundur - 26.06.2018
Óskað er eftir samþykki fyrir stækkun bílastæðis við Túngötu 7 þannig að það nái alveg að lóðarmörkum að Túngötu 9 eins og nánar er sýnt á rissaðri afstöðumynd.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stækkun bílastæðisins. Samráð verði haft við verkstjóra áhaldahúss vegna niðurtektar kantsteins.