Handverkshópurinn Heimöx óskar eftir stöðuleyfi fyrir söluhúsi.
Málsnúmer 201902080
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 24. fundur - 26.02.2019
Heimöx óskar eftir áframhaldandi stöðuleyfi fyrir 23 m² bjálkahúsi vestan við gamla íbúðarhúsið í Ásbyrgi. Fyrir liggja rissmyndir af húsi og afstöðu. Ennfremur liggur fyrir samþykki þjóðgarðsvarðar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi til eins árs.