Erindi vegna fjárstuðnings við endurbætur á Leirhafnarrétt.
Málsnúmer 201908083
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 42. fundur - 03.09.2019
Fyrir liggur beiðni um fjárstuðning vegna endurbóta á Leirhafnarrétt.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita styrk allt að 325 þús kr. árið 2019 og 260 þús kr. árið 2020 sem er helmingur af efniskostnaði samkv. fyrirliggjandi gögnum. Tekið er fram að réttin er aðalrétt samkv. Fjallaskilasamþykkt á svæðinu austan Vaðlaheiðar.