Sundlaugin í Lundi 2019
Málsnúmer 201910013
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 44. fundur - 07.10.2019
Fyrir Fjölskylduráði liggja aðsóknartölur fyrir sundlaugina í Lundi sumarið 2019. Neil Robertson var starfandi rekstaraðili þar í sumar líkt og árin 2018 og 2017.
Ráðið fjallaði um málefni sundlaugarinnar í Lundi, m.a. aðsóknartölur en 2382 gestir sóttu sundlaugina í sumar. Ráðið felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að ræða við núverandi rekstraraðila um áframhaldandi rekstur.