Íþróttafélagið Völsungur, ósk um endurnýjun á samstarfs- og styrktarsamningi við Orkuveitu Húsavíkur.
Málsnúmer 201911114
Vakta málsnúmerOrkuveita Húsavíkur ohf - 200. fundur - 09.12.2019
Íþróttafélagið Völsungur óskar eftir endurnýjun á samstarfs- og styrktarsamningi. Eldri samningur rann út í lok ágúst á þessu ári en hann var til 3ja ára.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf samþykkir að framlengja samstarfs- og styrktarsamning við íþróttafélagið Völsung til þriggja ára.