Varðandi umferðaröryggi í Þverholtinu
Málsnúmer 202001012
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 54. fundur - 07.01.2020
Aðalsteinn Árni Baldursson sendir inn erindi þar sem hann óttast öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda í Þverholtinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar Aðalsteini Árna fyrir erindið. Ráðið felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að koma fyrir ljósastaur og handriði við gangbraut frá Holtahverfi við Þverholt.