Aðalfundur OH 2020 - Ráðstöfun hagnaðar
Málsnúmer 202004093
Vakta málsnúmerOrkuveita Húsavíkur ohf - 206. fundur - 07.05.2020
Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu 2019.
Tillaga stjórnar OH um ráðstöfun hagnaðar er að ekki verði greiddur út arður til eiganda félagsins vegna rekstrarársins 2019, en sú tillaga er til samræmis við fyrri ákvörðun eiganda. Tillagan var samþykkt og verður hagnaður ársins færður til hækkunar á eigin fé félagsins.