Ósk um leyfi fyrir bílastæði innan lóðar að Mararbraut 19
Málsnúmer 202006067
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 71. fundur - 23.06.2020
Lóðarhafar að Mararbraut 19 óska heimildar til að gera bílastæði innan lóðar. Meðfylgjandi erindi er rissmynd af staðsetningu bílastæðis.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir gerð bílastæðisins. Sé óskað niðurtektar kantsteins vegna aðkomu að bílastæðinu er lóðarhafa bent á að hafa samband við þjónustustöð sveitarfélagsins.