Ósk um styrk til kaupa á spjaldtölvum vegna frístundastarfs
Málsnúmer 202007032
Vakta málsnúmerOrkuveita Húsavíkur ohf - 209. fundur - 09.07.2020
Fyrir stjórn Orkuveitu Húsavíkur liggur ósk frá félagsþjónustu Norðurþings um styrk til kaupa á spjaldtölvum til eflingar á frístundastarfi unmenna á aldrinum 10-16 með stuðning.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf samþykkir styrkveitingu að upphæð kr. 200.000,- til kaupa á spjaldtölvum til eflingar á frístundarstarfi ungmenna með stuðning.