Ósk um breytta skráningu á sumarhúsi í íbúðarhús að Myllunni við Raufarhöfn
Málsnúmer 202101144
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 88. fundur - 02.02.2021
Árdís Inga Höskuldsdóttir og Margrét Sigríður Höskuldsdóttir óska eftir að skráningu Myllunar (F2166264) verði breytt úr frístundahúsi í íbúðarhús.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á að breyta skráningu hússins enda verði tryggð fullnægjandi björgunarop úr hverju gistiherbergi.