Fara í efni

Áskorun frá FEBR um að sótt verði um styrk til félagsmálaráðuneytisins vegna aukin félagsstarfs fullorðinna vegna Covid-19

Málsnúmer 202103142

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 86. fundur - 22.03.2021

Fyrir fjölskylduráði liggur áskorun frá félagi eldri borgara á Raufarhöfn um að Norðurþing sækji um styrk til félagsmálaráðuneytins vegna aukins félagsstarfs fullorðina á árinu 2021 þar sem lítið var um félagsstarf á árinu 2020 vegna Covid-19.
Fjölskylduráð hefur falið félagsmálastjóra að sækja um fjárframlag vegna viðbótarverkefna í félagsstarfi fullorðinna 2021 sbr. bókun undir lið 3 í þessari fundargerð.
Fái Norðurþing fjárframlag verður því deilt hlutfallslega á milli félaga eldri borgara í sveitarfélaginu m.t.t. fjölda félagsmanna.