Ósk um leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi að Stóragarði 7
Málsnúmer 202104089
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 95. fundur - 27.04.2021
Börkur Emilsson og Erna Björnsdóttir óska eftir heimild til breytinga á innra skipulagi neðri hæðar Stóragarðs 7. Með breytingunum verða innréttaðar þrjár íbúðir á neðri hæð hússins. Meðfylgjandi umsókn eru teikningar unnar af Arnhildi Pálmadóttur arkitekt dags. 12. apríl 2021.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir breytingarnar.