Ósk um samtal vegna hálendisþjóðgarðs - afmörkun
Málsnúmer 202105060
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 362. fundur - 12.05.2021
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Kolbeini Óttarssyni Proppé þar sem óskað er eftir fundi með fulltrúum sveitarfélagsins til að skiptast á skoðunum um mögulega afmörkun hálendisþjóðgarðs.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að hafa samband við bréfritara og finna tímasetningu fyrir fundinn.