Yfirlýsing frá Fonti, félagi smábátaeigenda vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra að skerða afla til strandveiða
Málsnúmer 202201074
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 385. fundur - 27.01.2022
Byggðarráði hefur borist yfirlýsing frá Fonti, félagi smábátaeigenda vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra að skerða afla til strandveiða. Fontur harmar ákvörðun um að skerða afla til strandveiða á komandi sumri.
Byggðarráð skorar á sjávarútvegsráðherra að tryggja 48 daga til strandveiða á yfirstandandi fiskveiðiári.