Umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnubúðir að Núpsmýri
Málsnúmer 202202108
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 120. fundur - 01.03.2022
Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir vinnubúðir innan byggingarreits syðst á lóð fiskeldis í Núpsmýri. Óskað er eftir heimild til að láta vinnubúðir standa til ársloka 2022.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að veita stöðuleyfi fyrir vinnubúðunum til ársloka 2022.