Ósk um leyfi fyrir gám með snyrtingum á tjaldstæðinu við Heiðarbæ
Málsnúmer 202204098
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 125. fundur - 03.05.2022
Garðræktarfélag Reykhverfinga hf. óskar eftir leyfi til að setja niður 30 feta gám með snyrtingum á tjaldstæði við Heiðarbæ. Staðsetning yrði á miðju tjaldstæðinu. Meðfylgjandi erindi eru teikningar af gámnum frá framleiðanda.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar stöðuleyfi fyrir gámnum til loka maí 2023.