Beiðni um afhendingu gagna vegna hækkunar á árgjaldi fyrir kattahald
Málsnúmer 202204135
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 125. fundur - 03.05.2022
Ósk um afhendingu allra gagna er varða hækkun kattagjalds í gjaldskrá 2022 og raunkostnað Norðurþings vegna kattahalds 2021.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur framkvæmda- og þjónustufullrúa að svara erindinu. Sundurliðun á hunda- og kattagjaldi 2022 verður birt á heimasíðu Norðurþings.