Viðleguöryggi og dráttarbátaþjónustu í Húsavíkurhöfn
Málsnúmer 202205001
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 125. fundur - 03.05.2022
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráð liggur erindi frá Eimskip þar sem þeir gera athugasemdir við viðleguöryggi við Bökugarð gagnvart hreyfingu og sogi ásamt getu dráttarbáts til að þjónusta og tryggja öryggi skipa.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur hafnastjóra að leita leiða með hagsmunaaðilum til að bæta hafnaraðstöðu og öryggi í Húsavíkurhöfn.