Samstarfsverkefni milli OH og Bjsv.Garðars
Málsnúmer 202206019
Vakta málsnúmerOrkuveita Húsavíkur ohf - 233. fundur - 08.06.2022
Björgunarsveitin Garðar vill kanna grundvöll fyrir samstarfi milli Orkuveitu Húsavíkur og björgunarsveitarinnar á kaupum á flýgildi.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir að fjármagna kaup á flýgildi sem mun nýtast björgunarsveitinni Garðari. Jafnframt mun hann nýtast í verkefnum fyrir Orkuveituhúsavíkur er varðar kortlagningu og bilunarleit í lagnakerfi veitunnar á starfssvæði hennar.