Orkuveita Húsavíkur óskar eftir leyfi til að færa skilju vegna sjóbaða
Málsnúmer 202210113
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 137. fundur - 01.11.2022
Orkuveita Húsavíkur óskar leyfis til að færa skilju til vesturs frá borholu HU-01 við Ostakarið til að koma í veg fyrir rennslistruflanir til sjóbaða GeoSea. Meðfylgjandi erindi er skematísk mynd af breytingunni.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir tilfærslu skiljunnar. Ráðið leggur til að skiljan verði máluð í umhverfislitum.