Akstursstyrkur vegna aksturs leikskólabarna - Akstur leikskólabarna með skólabíl
Málsnúmer 202211032
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 134. fundur - 15.11.2022
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar erindi Halldísar Grímu Halldórsdóttur um akstursstyrk og akstur leikskólabarna með skólabíl.
Fjölskylduráð fjallaði um akstursstyrk og akstur leikskólabarna með skólabíl. Að svo stöddu stendur ekki til að taka upp aksturstyrki. Fjölskylduráð telur ekki vera lagalegar forsendur fyrir því að hefja akstur leikskólabarna með skólabíl þar sem ekki er til reglugerð um akstur leikskólabarna líkt og er til staðar um akstur grunnskólabarna.