Ósk um meðmæli vegna hafnsöguréttinda við hafnir Norðurþings
Málsnúmer 202303056
Vakta málsnúmerStjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 10. fundur - 22.03.2023
Fyrir Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings liggur ósk frá Hilmari Þór Guðmundssyni um meðmæli vegna umsóknar um hafnsöguréttindi við hafnir Norðurþings.
Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings samþykkir að veita Hilmari Þór Guðmundssyni meðmæli sem hafnsögumaður við hafnir Norðurþings og felur hafnastjóra að útbúa meðmælabréf.