Ósk um bílastæðamerkingar við Hafnarstétt 1 og 3
Málsnúmer 202305036
Vakta málsnúmerStjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 13. fundur - 29.06.2023
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur erindi dagsett 8. maí sl. frá húsráði Stéttarinnar á Húsavík varðandi bílastæði og merkingar á hafnarsvæði.
Stjórnin bendir húsráði Stéttarinnar á að beina notendum Stéttarinnar á bílastæðin á suðurfyllingunni auk þess sem bílastæðamál á hafnasvæðinu séu í heildarendurskoðun.