Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Lund gistiheimili
Málsnúmer 202306021
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 161. fundur - 20.06.2023
Óskað er eftir leyfi til viðbyggingar við Lund gistiheimili í Öxarfirði. Teikning er unnin af Birni Sveinssyni byggingartæknifræðingi. Viðbygging verður steinsteypt, 64,8 m² að grunnfleti.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir viðbyggingunni.