Ósk um umsögn um rekstrarleyfi gistingar fyrir Ketilsbraut 20
Málsnúmer 202306029
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 161. fundur - 20.06.2023
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar vegna veitingu rekstrarleyfis til reksturs gististaðar í flokki II-C (minna gistiheimili) að Ketilsbraut 20 á Húsavík. Rekstraraðili er Fógeti ehf.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita jákvæða umsögn um erindið.