Þátttaka og framlög sveitarfélaga til stafræns samstarfs 2024
Málsnúmer 202310101
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 445. fundur - 26.10.2023
Fyrir byggðarráði liggur að taka ákvörðun um samstarf vegna framlaga til stafræns samstarfs sveitarfélaga á árinu 2024.
Byggðarráð samþykkir að setja áfram framlag til stafræns samstarfs sveitarfélaga á árinu 2024 og metur það svo að mikið hagræði sé að sveitarfélögin vinni meira saman að stafrænum lausnum.