Björgunarsveitin Núpar, umsókn um styrk vegna áramótabrennu og flugeldasýningar 2023
Málsnúmer 202310135
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 168. fundur - 14.11.2023
Björgunarsveitin Núpar á Kópaskeri óskar eftir styrk frá Norðurþingi til að sjá um áramótabrennu og flugeldasýningu á sorpurðunarsvæðinu, norðan við Kópasker.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja Björgunarsveitina Núpa um kr. 400.000 fyrir flugeldasýningu áramótin 2023/2024.