Umsókn um samþykki fyrir breyttri notkun húsa í Akurseli
Málsnúmer 202312081
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 177. fundur - 19.12.2023
Samherji Fiskeldi óskar eftir samþykki fyrir breyttri notkun húsa í matshluta 08 og 10 að Akurseli í Öxarfirði. M.a. er horft til þess að skilgreina íbúð í hluta hússins. Fyrir liggja teikningar unnar af AVH.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðar teikningar og breytta notkun hússins, með fyrirvara um samþykki eldvarnareftirlits Norðurþings.