Umsókn um byggingarleyfi fyrir hundahúsi í landi Presthóla
Málsnúmer 202404022
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 185. fundur - 09.04.2024
Sigurður Árnason óskar leyfis til að byggja hundahús á Presthólum. Fyrir liggja teikningar af húsinu unnar af Sigurbergi Árnasyni arkitekt.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir mannvirkinu þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað.