Eigendur Stóragarðs 4 og 6 óska eftir að skipulagðar verði lóðir undir bílskúra gegnt lóðum þeirra
Málsnúmer 201008076
Vakta málsnúmerSkipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 91. fundur - 18.04.2012
Með tölvupósti dags. 20. febrúar 2012 óskar Sigurgrímur Skúlason eftir endurupptöku fyrri óskar um byggingarrétt fyrir bílgeymslur við Stóragarð 4 og 6. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að kalla eftir byggingaráformum lóðarhafa Stóragarðs 4 og 6 sem og ræða við lóðarhafa Túns. Afgreiðslu erindis frestað.