Helgi Jóhannsson óskar eftir leyfi fyrir pylsuvagni
Málsnúmer 201205020
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 18. fundur - 09.05.2012
Helgi spyr hvort mögulegt væri að fá leyfi fyrir að hafa lítinn pylsuvagn á Mærudögum 2012, staðsettan á hafnarsvæðinu eða tjaldsvæðinu eða þá að færa vagninn milli þessara svæða eftir hentugleikum. Framkvæmda- og hafnanefnd gerir ekki athugasemd við slík leyfi en vísar umsækjanda á framkvæmdaaðila Mærudaga 2012.