Fara í efni

Eigendur e. hæðar Stóragarði 4 sækja um byggingarleyfi fyrir svalir á íbúðarhúsið

Málsnúmer 201207006

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 94. fundur - 11.07.2012

Fyrir liggur skriflegt samþykki meðeiganda í húsinu, jákvæð umsögn húsafriðunarnefndar og munnlegt samþykki næsta nágranna. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir byggingu svalanna, enda verði þess gætt að allur frágangur og útlit verði í samræmi við aldur og gerð hússins. Áður en framkvæmdir hefjast skal umsækjandi skila inn til byggingarfulltrúa umsögn húsafriðunarnefndar um nánari útfærslu á frágangi svalanna.