Tillaga frá Áka Haukssyni um sölutjöld og vagna á hafnarstétt á Húsavík
Málsnúmer 201207026
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 20. fundur - 10.07.2012
Áki Hauksson leggur til að framkvæmda- og hafnanefnd veiti hafnastjóra heimild til að veita tímabundin leyfi fyrir sölutjöldum/ vögnum á hafnarstétt yfir sumartímann. Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir tillöguna.