Egill Olgeirsson hjá Mannviti f.h. Norðlenska matborðsins ehf. óskar eftir umsögn nefndarinnar um hugmyndir að stækkun frystiklefa að Suðurgarði 2
Málsnúmer 201306060
Vakta málsnúmerSkipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 106. fundur - 25.06.2013
Með erindi eru lagðar fram skissur og greinargerð. Í gildandi deiliskipulagi er ekki gert ráð fyrir frekari uppbyggingu á lóðinni. Nefndin telur ekki heppilegt að byggja eins nálægt götu eins og sýnt er á teikningum. Nefndin veitir því neikvæða umsögn um erindið.