Elín Rúna Backman óskar eftir leyfi til að starfrækja dýralæknastofu í bílskúr að Baldursbrekku 5
Málsnúmer 201403055
Vakta málsnúmerSkipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 115. fundur - 19.03.2014
Óskað er eftir samþykki Norðurþings fyrir rekstri dýralæknastofu fyrir smádýr í bílskúr húsnæðis að Baldursbrekku 5 á Húsavík. Fyrir liggur skriflegt samþykki nágranna. Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemd við að starfrækt verði dýralæknastofa í húsnæðinu.