Björgunarsveitin Garðar, Rauði krossinn og Slysavarnardeild kvenna á Húsavík, umsókn um styrk
Málsnúmer 201407047
Vakta málsnúmerBæjarráð Norðurþings - 110. fundur - 17.07.2014
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Björgunarsveitinni Garðari, Rauða krossinum og Slysavarnardeild kvenna á Húsavík. Félögin óska erfir styrk á móti gjöldum sem fallið hafa vegna viðbyggingar Nausts, félagsaðstöðu félaganna. Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni félaganna vegna framkvæmda við viðbyggingu í Naust.