Rafræn handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum
Málsnúmer 201410069
Vakta málsnúmerFræðslu- og menningarnefnd Norðurþings - 45. fundur - 14.01.2015
Handbókin lögð fram til kynningar. Fræðslu- og menningarnefnd leggur áherslu á að grunnskólar innan sveitarfélagsins kynni sér handbókina og starfi samkvæmt henni. Telji stjórnendur einstakra skóla að aðlaga þurfi handbókina þeirra starfsemi ber þeim að gera tillögur þar um í samvinnu við fræðslu- og menningarfulltrúa og leggja fyrir nefndina til staðfestingar.