Ósk um samstarf vegna Jónsviku
Málsnúmer 201502019
Vakta málsnúmerFræðslu- og menningarnefnd Norðurþings - 46. fundur - 25.02.2015
Fyrir nefndinni liggur erindi frá Hörpu Fönn Sigurjónsdóttur þar sem leitað er eftir langtíma samstarfssamningi vegna Jónsviku, vinnuviku listamanna í Kaldbak.
Í ljósi þröngrar fjárhagsstöðu málaflokksins sér nefndin sér ekki fært að ganga til samstarfssamnings.