Umsókn um óbyggða lóð að Bakkagötu 5, Kópaskeri undir baðaðstöðu.
Málsnúmer 201611093
Vakta málsnúmerSkipulags- og umhverfisnefnd - 9. fundur - 15.11.2016
Óskað er eftir að fá lóðinni að Bakkagötu 5, þar sem áður stóð Bakki, úthlutað til að koma þar upp baðaðstöðu.
Skipulags- og umhverfisnefnd lýst vel á fram komna hugmynd um nýtingu Bakkagötu 5 og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kalla eftir frekari gögnum um fyrirhugaða uppbyggingu.