Umsókn um stofnun lóðar á Reykjavöllum í Reykjahverfi
Málsnúmer 201612012
Vakta málsnúmerSkipulags- og umhverfisnefnd - 11. fundur - 13.12.2016
Óskað er eftir samþykki fyrir stofnun 16.166 m² lóðar undir og umhverfis útihús að Reykjavöllum í Reykjahverfi. Fyrir fundi er hnitsett teikning af afmörkun lóðar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt, með fyrirvara um að skilað verði inn skriflegu samþykki aðliggjandi landeigenda vegna landamerkja.